Fjárfestingar kvenna í íslensku atvinnulífi

Áhrifaþættir, hindranir og hvatar

Höfundar

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24122/tve.a.2025.22.1.4

Lykilorð:

efnahagslegt sjálfstæði, fjárfestingahegðun kvenna, fjármálalæsi, hindranir í fjárfestingum, hvatar til fjárfestinga

Útdráttur

Markmið þessarar greinar er að varpa ljósi á þá þætti sem hafa áhrif á fjárfestingahegðun kvenna í íslensku atvinnulífi, einkum hindranir en einnig hvetjandi áhrifaþætti. Greinin byggir á könnun meðal 316 kvenna í Félagi kvenna í atvinnulífinu (FKA), sem flestar gegna stjórnunar- og/eða leiðtogastöðum, reka eigin fyrirtæki eða búa yfir mikilli reynslu úr atvinnulífinu. Þetta þýði hefur alla burði til að veita einstaka innsýn í hindranir sem jafnvel konur með menntun, tekjur og aðgang að upplýsingum mæta. Slíkt getur varpað ljósi á dýpri og kerfisbundnari áhrifaþætti fjárfestingahegðunar. Að því er höfundum best er kunnugt, er þetta fyrsta rannsókn sinnar tegundar á Íslandi sem beinist að fjárfestingahegðun kvenna með áhrif innan atvinnulífsins. Rannsóknarspurningarnar eru: Hvaða þættir hafa áhrif á fjárfestingaákvarðanir kvenna í íslensku atvinnulífi og hvaða hindranir standa í vegi fyrir þátttöku þeirra á fjármálamörkuðum? Niðurstöðurnar sýna að helstu hindranir sem konurnar nefna eru skortur á fjármagni, fjárhagsleg þekking og ótti við áhættu. Einnig kemur fram að félagslegir og sálfræðilegir þættir, s.s. skortur á fyrirmyndum og minni öryggistilfinning gagnvart fjárfestingum, spila hlutverk. Yngri konur í atvinnulífinu og konur með lægri tekjur eða minni menntun eru sérstaklega líklegar til að upplifa slíkar hindranir. Aftur á móti reyndust þær sem höfðu fengið fjármálafræðslu í æsku marktækt öruggari með fjárfestingaákvarðanir. Fræðilegt framlag greinarinnar felst í að sameina þverfaglegan ramma kenninga um fjármálalæsi, áhættumat og félagsmótun, og tengja við gögn úr íslenskum veruleika. Hagnýtt framlag felst í tillögum að stefnumótandi aðgerðum til að draga úr kynjamun í fjárfestingum og efla efnahagslegt sjálfstæði kvenna

Um höfund (biographies)

  • Ásta Dís Óladóttir, Háskóli Íslands - Viðskiptafræðideild

    Ásta Dís Óladóttir prófessor

  • Þóra H. Christiansen, Háskóli Íslands - Viðskiptafræðideild

    Þóra H. Christiansen aðjúnkt

  • Haukur Freyr Gylfason, Háskóli Íslands - Viðskiptafræðideild

    Haukur Freyr Gylfason lektor

  • Gylfi Magnússon, Háskóli Íslands - Viðskiptafræðideild

    Gylfi Magnússon prófessor

  • Haukur C. Benediktsson, Háskóli Íslands - Viðskiptafræðideild

    Haukur C. Benediktsson lektor

  • Freyja Vilborg Þórarinsdóttir, Háskóli Íslands - Viðskiptafræðideild

    Freyja Vilborg Þórarinsdóttir doktorsnemi við Viðskiptafræðideild og Rannsóknasetur um jafnrétti í efnahags- og atvinnulífi við Háskóla Íslands.

Niðurhal

Útgefið

12.06.2025

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar