„Ég nota alla lausa tíma sem ég hef“ - Netnotkun íslenskra ungmenna og mörk sem foreldrar setja þeim um netnotkun
Lykilorð:
netnotkun, netávani, mörk sett af foreldrum, ungmenniÚtdráttur
Netnotkun hefur aukist mikið síðasta áratuginn og er orðin stór hluti af daglegu lífi margra, einnig ungmenna. Tækniþróun hefur leitt til þess að komast má á Netið næstum hvar og hvenær sem er. Í þessari grein er skýrt frá niðurstöðum rannsóknar á netnotkun ungmenna í 9. og 10. bekk grunnskóla á Íslandi og hvort foreldrar setji ungmennunum einhverjar reglur eða mörk varðandi hana. Byggt er á gögnum sem safnað var í rannsóknarverkefni um netávana (netfíkn) meðal ungmenna í Evrópu (EU NET ADB). Markmið rannsóknarverkefnisins var að meta algengi og áhrifaþætti netávana meðal evrópskra ungmenna. Blönduðum rannsóknaraðferð- um var beitt við gagnaöflun, spurningalistakönnun og hálfstöðluðum viðtölum við ungmenni sem mældust með netávana. Meginniðurstöður eru þær að allir þátttakendur í 9. og 10. bekk grunnskóla nota Netið, og tveir af hverjum þremur gera það daglega eða nánast daglega. Strákar verja meiri tíma á Netinu en stelpur eða að meðaltali um tveimur og hálfri klukkustund á dag á móti tveimur klukkustundum hjá stelpum. Um 1% þátttakenda í rannsókninni hafði einkenni netávana og um 7% til viðbótar töldust vera í áhættuhópi vegna netávana. Nærri 60% foreldra settu því sjaldan eða aldrei mörk hversu lengi ungmennin máttu nota Netið. Ungmenni sem rætt var við í eigindlegum hluta rannsóknarinnar töldu sig almennt hafa stjórn á netnotkun sinni en mörg hver voru þó jafnframt á þeirri skoðun að netnotkun þeirra væri orðin meiri en eðlilegt gæti talist. Tengja mátti leiða, einmanaleika og flótta frá raunveruleikanum við netnotkun ungmennanna sem rætt var við í eigindlegum hluta rannsóknarinnar.##plugins.themes.default.displayStats.downloads##
##plugins.themes.default.displayStats.noStats##
