Steingrímur J. Sigfússon: Við öll - íslenskt velferðarsamfélag á tímamótum

Höfundar

  • Róbert H. Haraldsson

##doi.readerDisplayName##:

Útdráttur

Steingrímur J. Sigfússon er þekktur fyrir rökfimi sína og staðfestu í baráttu fyrir þeim málum sem hann ber fyrir brjósti. Bókin Við öll grefur á engan hátt undan þeim orðstír. Lesendur þurfa að minnsta kosti ekki að velkjast í vafa um hjartansmál höfundar. Hann vill sem fyrr standa vörð um íslenskt velferðarsamfélag (norræna módelið), eyða fátækt og tryggja stóraukinn jöfnuð í skiptingu lífsgæða á Íslandi og jörðinni allri, vernda umhverfið og íslenska náttúru, halda Íslandi utan við Evrópusambandið og skipa okkur framarlega í flokk friðflytjenda í heiminum. Og lesendur þurfa heldur ekki að velkjast í vafa um það hverjir andstæðingar höfundar eru. Þar stendur fremst í flokki nýfrjálshyggjan með einkavæðingartrúboð sitt og áherslu á græðgiskapítalisma, ásamt með "fjármagninu", jakkafatakörlunum sem stýra bönkum og stórfyrirtækjum, að ógleymdum Bandaríkjum Norður Ameríku. Skýr sýn Steingríms á hvað hann sjálfur stendur fyrir og við hverju honum hrýs hugur veitir honum sjálfsöryggi sem á stundum jaðrar við oflæti; hann segir um stefnumál sína að þau eigi "meira erindi við samtímann og framtíðina en allt hitt staðnaða góssið til samans".

Niðurhal

Útgefið

15.12.2006

Tölublað

Kafli

Bókadómar