Hvað er umhverfi? Um hugtökin umhverfi og umhverfisáhrif í ljósi niðurstöðu Hæstaréttar í máli nr. 671/2008

Höfundar

  • Ásdís Hlökk Theodórsdóttir

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.13177/irpa.a.2010.6.1.3

Útdráttur

Grein þessi fjallar um niðurstöðu Hæstaréttar Íslands í máli nr. 671/2008 um mat á umhverfisáhrifum Vestfjarðavegar um Teigsskóg í Reykhólahreppi. Niðurstaða Hæstaréttar í málinu felur í sér nýja túlkun á lykilhugtökum við mat á umhverfisáhrifum, þ.e. hugtökunum umhverfi og umhverfisáhrif, auk þess sem ný túlkun á sambandi markmiða framkvæmdar, umhverfismats og leyfisveitinga er sett fram. Í greininni er fjallað um hvort niðurstaða Hæstaréttar hafi í för með sér að umhverfismat hérlendis þróist í aðra átt heldur en lagarammi umhverfismats hefur almennt verið túlkaður og almennt gerist um þróun umhverfismats á alþjóðavettvangi. Jafnframt er fjallað um hvort að umhverfismat verður í kjölfarið betur eða síður til þess fallið að valda því hlutverki sem því er ætlað. Niðurstaða greinarinnar er að túlkun Hæstaréttar á umræddum lykilhugtökum umhverfismats falli ekki að almennri faglegri þróun umhverfismats eða almennri túlkun lagaramma umhverfismats hérlendis og erlendis. Fordæmisgildi dómsins kallar á að stjórnvöld bregðist við með lagabreytingum eða skýringum við núgildandi lagaramma umhverfismats.

Um höfund (biography)

  • Ásdís Hlökk Theodórsdóttir
    Aðjúnkt við Háskólann í Reykjavík.

Niðurhal

Útgefið

15.06.2010

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar