Er samband á milli daga, mánaða, hátíða og ávöxtunar á íslenskum hlutabréfamarkaði?
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24122/tve.a.2003.1.1.3Lykilorð:
Skilvirkni, íslenskur hlutabréfamarkaður, dagar, mánuðir, hátíðir.Útdráttur
Hér er gerð grein fyrir rannsókn á sambandi daga, mánaða, hátíða og ávöxtunar íslenska hlutabréfamarkaðarins frá janúar 1993 til maí 2003. Kannað var samband milli daga vikunnar, mánaða og ávöxtunar og hvort ávöxtun hafi verið óvenjuleg daginn fyrir og eftir lokanir markaða vegna hátíða. Notaðar voru tvær aðferðir við rannsóknina, Kruskal-Wallis próf og línuleg aðhvarfsgreining. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að ekki er tölfræðilega marktækt samband á milli daga vikunnar og ávöxtunar, og ekkert marktækt samband er á milli mánaða og ávöxtunar. Marktækt samband er hins vegar á milli ávöxtunar og ákveðinna daga, þ.e. fyrsta viðskiptadags fyrir áramót, fyrsta viðskiptadags eftir áramót og fyrsta viðskiptadags eftir páska.Niðurhal
Útgefið
15.06.2003
Tölublað
Kafli
Ritrýndar greinar
Leyfi

Útgefið efni tímaritsins er í opnum aðgangi samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 License.