Þjóðleg fjölbreytni í stjórnun íslenskra hlutafélaga

Höfundar

  • Simona Vareikaité
  • Inga Minelgaité
  • Gylfi Magnússon

DOI:

https://doi.org/10.24122/tve.a.2022.19.1.2

Lykilorð:

Þjóðleg fjölbreytni, stjórnir fyrirtækja, innflytjendur.

Útdráttur

Þjóðleg fjölbreytni stjórna hlutafélaga og einkahlutafélaga hefur lítið verið rannsökuð erlendis og ekkert hérlendis og niðurstöður um áhrif hennar á rekstur fyrirtækja eru nokkuð misvísandi. Þær takmörkuðu rannsóknir sem fyrir liggja á fjölbreytni stjórna hérlendis hafa einkum horft til kynjaskiptingar en ekki þjóðernis. Íslenskur vinnumarkaður hefur orðið sífellt fjölbreyttari hvað varðar þjóðerni starfsmanna undanfarna áratugi, allt frá EES samningnum. Það á sér augljósar hagrænar skýringar sem raktar eru í greininni. Hins vegar endurspegla félagsstjórnir íslenskra hlutafélaga illa þennan nýja veruleika. Innflytjendur eiga enn sæti í mjög fáum félagsstjórnum þótt þeim hafi fjölgað ört hlutfallslega undanfarin ár. Talsverður munur er á milli atvinnugreina hvað varðar fjölda erlendra stjórnarmanna og þeir skiptast einnig misjafnlega á greinar eftir þjóðerni. Skýringar þessa liggja ekki fyrir með vissu en endurspegla þó að nokkru marki skiptingu innflytjenda á starfsgreinar.

Um höfund (biographies)

Simona Vareikaité

M.Sc. í viðskiptafræði.

Inga Minelgaité

Prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands.

Gylfi Magnússon

Prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands.

Niðurhal

Útgefið

28.06.2022

Hvernig skal vitna í

Vareikaité, S., Minelgaité, I., & Magnússon, G. (2022). Þjóðleg fjölbreytni í stjórnun íslenskra hlutafélaga. Tímarit Um viðskipti Og efnahagsmál, 19(1), 27–52. https://doi.org/10.24122/tve.a.2022.19.1.2

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar

Mest lesnu greinar eftir sama höfund(a)

1 2 > >>