Eru íslenskir neytendur smálána ólæsir á fjármál?
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24122/tve.a.2018.15.2.4Lykilorð:
Smálán, fjármálalæsi, neytendahegðun, örlán.Útdráttur
Mikil umræða hefur skapast á Íslandi um hin svo kölluðu smálánafyrirtæki. Annars vegar finnst mörgum að smálán bæti við flóru fjármálavara sem eru í boði fyrir neytendur. Hins vegar er hægt að líta svo á að smálán séu ekki annað en okurlánastarfssemi, enda vextir á þessum lánum afar háir. Þrátt fyrir að pólitísk umræða um smálán hafi verið nokkur hafa þau hins vegar verið nánast óskoðuð í fræðasamfélaginu. Í þessari grein skoðum við hvort neytendur smálána séu með verra fjármálalæsi en hinn almenni neytandi. Niðurstöðurnar gefa til kynna að neytendur smálána séu með verra fjármálalæsi en almennir neytendur. Þeir eru einnig yngri, líklegri til að vera karlkyns, með lægri tekjur og menntun.Niðurhal
Útgefið
18.12.2018
Tölublað
Kafli
Ritrýndar greinar
Leyfi

Útgefið efni tímaritsins er í opnum aðgangi samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 License.