Hinn íslenski fjármálastjóri: Einkenni, umhverfi og verkefni
##doi.readerDisplayName##:
https://doi.org/10.24122/tve.a.2015.12.1.1Lykilorð:
Fjármálastjórar, stjórnunarreikningsskil, ICEMAC.Útdráttur
Þessi grein byggist á rannsókn sem var gerð árið 2008 og aftur árið 2014 m.a. á einkennum og verkefnaáherslum fjármálastjóra í 300 stærstu fyrirtækjum á Íslandi. Báðar rannsóknirnar náðu yfir 60% svörun sem þykir mjög gott meðal stjórnenda. Niðurstöður eru m.a. þær að íslenskir fjármálastjórar fylgja almennt sömu þróun í áherslum og hlutverki og í öðrum löndum. Það er að segja meiri áhersla er lögð á greiningar, ákvarðanatökustuðning og innanhúsráðgjöf en bókhald og uppgjör. Af öðrum niðurstöðum ber að nefna að fleiri konur eru fjármálastjórar í íslenskum fyrirtækjum en á Norðurlöndunum, rétt undir helmingur fjármálastjóra stærri fyrirtækja hefur verið ráðinn á síðustu 5 árum og skortur er á þekkingu á mörgum aðferðum og stöðlum stjórnunarreikningsskila og innra eftirlits (management accounting).Niðurhal
Útgefið
15.06.2015
Tölublað
Kafli
Ritrýndar greinar
Leyfi

Útgefið efni tímaritsins er í opnum aðgangi samkvæmt skilmálum Creative Commons Attribution 4.0 License.