Taktu til við að tvista: Námsleikir í skólastarf

Höfundar

  • Hildur Dröfn Guðmundsdóttir
  • Rannveig Björk Þorkelsdóttir

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24270/netla.2019.17

Lykilorð:

námsspil, regluleikir, frjáls leikur, skapandi kennsluaðferðir, leiklist

Útdráttur

Meginmarkmið þessarar greinar er að fjalla um námsleiki, þ.e. kennslufræðilega leiki og frjálsan leik barna með fræðilegu yfirliti út frá kenningum Fro?bel, Dewey, Piaget og Vygotsky um frja?lsan leik og hvernig kenningar Gagne? um skilyrði fyrir námi og kenning Csikszentmihalyi um flæði tengjast kennslufræðilegum leik. Þá er Aðalnámskrá grunnskóla skoðuð út frá leiknum og skoðaður munurinn á kennslufræðilegum leik og frjálsum leik. Einnig er fjallað um þróun og tilgang námsspilsins Taktu til við að tvista. Það er námsspil sem tengir saman nám og leik og getur hentað vel til upprifjunar á námsefni og til að auka þekkingu nemenda. Spilið má nota í öllum námsgreinum og með öllum aldurshópum. Rannsóknarspurning sem þessari grein er ætlað að svara er eftirfarandi: Hvernig getur nám átt sér stað í gegnum regluleik? Markmiðið með spilinu er að ýta undir samskipti og samvinnu nemenda og að nemendur fái hreyfingu og útrás í kennslustundum. Einnig er markmiðið að auka færni nemenda í viðkomandi námsgrein og að þeir séu virkir þátttakendur í eigin námi. Niðursto?ðurnar benda til þess að þegar kennslufræðilegir leikir eru notaðir til þjálfunar og endurtekningar á ákveðnum námsþáttum má auðvelda nemendum að öðlast ákveðna færni í námsþættinum. Því má leiða líkum að því að nám eigi sér stað í gegnum leik og nemendur geti aukið við þekkingu sína og færni með þessari kennsluaðferð.

Um höfund (biographies)

  • Hildur Dröfn Guðmundsdóttir
    Hildur Dröfn Guðmundsdóttir (hildurdrofn@skolar.fjardabyggd.is) starfar sem umsjónarkennari á unglingastigi í Eskifjarðarskóla. Hún lauk B.Ed.-prófi frá Háskóla Íslands árið 2015 og M.Ed.-prófi í menntunarfræðum frá sama skóla 2017.
  • Rannveig Björk Þorkelsdóttir
    Rannveig Björk Þorkelsdóttir (rbth@hi.is) er lektor í leiklist við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hún lauk doktorsprófi frá Kennaradeild Norska tækni- og vísindaháskólans, (NTNU) í Þrándheimi 2016 þar sem hún skrifaði um innleiðingu leiklistar í grunnskóla á Íslandi. Rannsóknarsvið hennar tengist meðal annars listkennslu og leiklist

Niðurhal

Útgefið

2020-01-30

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar