Umframávöxtun á íslenskum hlutabréfamarkaði

Höfundar

  • Ásgeir Jónsson
  • Stefán B. Gunnlaugsson

##doi.readerDisplayName##:

https://doi.org/10.24122/tve.a.2004.2.1.1

Lykilorð:

Skilvirkni, íslenskur hlutabréfamarkaður, V/H‐hlutfall.

Útdráttur

Hér er gerð grein fyrir rannsókn á sambandi nokkurra kennitalna fyrirtækja og ávöxtunar íslenskra hlutabréfa. Þær kennitölur sem um ræðir eru V/H?hlutfall, qhlutfall, arðhlutfall, söguleg ávöxtun og fyrirtækjastærð. Rannsóknin nær yfir tímabilið frá janúar 1993 til júní 2003 og er byggð á því að búa til ný verðbréfasöfn í hverjum mánuði eftir þeim kennitölum sem rannsakaðar voru. Ávöxtun verðbréfasafnanna var síðan reiknuð og kannað hvort marktækur munur væri á milli þeirra að teknu tilliti til kerfisbundinnar áhættu. Helstu niðurstöður eru þær að hlutabréf með lágt V/H?hlutfall skiluðu mun hærri ávöxtun en önnur hlutabréf og var sá munur marktækur. Hlutabréf lítilla fyrirtækja og hlutabréf með lágt q?hlutfall skiluðu einnig hærri ávöxtun en önnur hlutabréf en sá munur var ekki marktækur. Aftur á móti mældist ekkert samband á milli arðhlutfalls, sögulegrar frammistöðu og ávöxtunar.

Um höfund (biographies)

  • Ásgeir Jónsson
    Háskóli Íslands
  • Stefán B. Gunnlaugsson
    Háskólinn á Akureyri

Niðurhal

Útgefið

15.06.2004

Tölublað

Kafli

Ritrýndar greinar